Ađalvalmynd

Myndir

Klukkan

PORTÚGAL

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Eintóm hamingja :)

03. september 2008 klukkan 18:59
Jæja þá er ég sest niður við eldhúsborðið með banana og vatn og tilbúin til þess að koma með eitthvað sniðugt blogg handa ykkur sem hafa verið að bíða eftir einhverju frá mér. Ókei semsagt ég kom heim 21 Júní á klakann, síðan þá hef ég verið að gera ýmislegt ég byrjaði á því að vera fyrstu helgina mína á Hofsós að knúsa og kyssa ömmu og afa og djamma með Rakel Sif frænku sem er án efa besti djamm félaginn. Svo byrjaði ég bara strax á mánudeginum að vinna á videoval og var í fríi í viku og fór svo að vinna hjá Bás sem var bara hamingja, þar sem mest hottí gaur var að vinna með okkur krökkunum og án efa sá duglegasti í bransanum.Vann í bás í hvað frá því í júlí í drullu og skít allan daginn, en það bjargaði samt alltaf vinnunni hvað það var skemmtilegur félagskapur. Ég kláraði loksins svo bílprófið tók fyrst bóklegaprófið hélt að ég myndi drepast úr stressi og var ótrúlega hrædd um að falla en náði með 0-1 ótrúlega sátt með það, svo viku eftir þá tók ég verklegaprófið og náði því held með einni villu sem er bara nokkuð gott finnst mér nú.Ég keypti mér bíl í seinustu viku, ég keypti mér Nissa Primera 2002 árgerð, fékk hann á svo geðveikt góðu verði, langaði alltaf í lítinn skoda fabia en keypti þennan töffara kagga í staðinn J Ég fékk mér aðra vinnu gleymdi að ræða hana, er semsagt að vinna í Siglósport  núna frá 10 til 4 á daginn,allir að koma og versla, fullt af nýjum fötum haha.. :)
 en þetta er ekkert smá þægilegur vinnutími því ég er búin að skrá mig í fjarnám og tek 10 einingar sem er slatti finnst mér, verður erfitt en maður verður að standa sig í því!
 

Núna eru flest allir farnir í skóla nema MA-ingarnir ótrúlega sátt með það,það sem ég get verið meira með Gabba og nördunum sem eru í Ma, samt farinn að sakna stelpnanna alveg ótrúlega mikið, er ekki búin að sjá þær í langan tíma og það er frekar slaft !!
Heyriði það stelpur!

 Mér finnst alveg ótrúlega skrítið að vera að blogga um það sem ég er búin að vera að gera seinustu daga hérna á sigló, eða hvað er að frétta af mér þegar ég er hérna á sigló, þar sem lífið er ekkert svo spennandi, það frétta hvort sem er allir allt um alla hérna á sigló. Sigló er náttúrulega frægur fyrir það.Þannig að þetta mun líklegast vera loka bloggið mitt hérna. Þangað til að ég fer út aftur J

þetta er komið gott,ætlaði bara að henda inn smá fréttum.
kveðja í seinasta sinn.
Bára Dögg
_______________________

..

05. ágúst 2008 klukkan 18:45
kannski í kvöld?
eða á bara á morgun ?
eða æji bara hinn ;)

jćja

25. júní 2008 klukkan 19:21

Viljið þið fá langt og gott blogg um seinustu dagana mína ?
ferðina heim?
afhverju ég kom viku fyrr?
og hvernig dagarnir minir á íslandi eru búnir að vera
?

Gleđi,gleđi,gleđi!!!

19. júní 2008 klukkan 22:56

ég er að fara heim á morgun....!!!!
get ekki beðið liggaliggalái
Bára er loksins að koma heim!!

Reyniđ ađ gera betur !!

04. júní 2008 klukkan 15:10

Ég heiti Bára og ég fékk 8 í lokaprófinu mínu í Portúgölsku!!Svalur






Stelpurnar koma á morgun wúhúhúhúhúhúhuhú!

p.s ég hef ákveðið að koma ekki heim ég fýla mig of mikið hérna!!
og þið fáið ekkert blogg frá mér á næstunni ;)


kveðja. Bára Portúgali ;)


Gaman ađ vera til í dag..

30. maí 2008 klukkan 15:17
  Jæja þá er ég sest niður og ætla að blogga meðan ég hef tíma !Seinustu helgi fór ég á markað með Katrín og fórum að selja hluti, já selja semsagt föt og drasl sem við vildum ekki taka með heim til Íslands. Byrjuðum á því að vakna eldsnemma um morguninn til að taka lest þangað. Ég tók lest klukkan 7 og katrín hálftíma fyrr.Þetta er ekki langt frá mér þannig að ég ákvað að kaupa mér ekki miða aðeins 3 stopp og ég hélt að það væri engir miðakallar á ferli á þessum tíma.Ég fer inn í lestina og labba beint inn í klefann þar sem miðakallinn var, ég bara geggjað og hleyp í annað hólf. Svo er komið 2 stopp og nei nei kemur ekki kallinn inn í hólfið mitt, þannig að ég fer að hlaupa í næsta hólf og stekk svo út. Svo hitti ég Katrín á lestarstöðinni og við þurftum að taka aftur lest en aðeins 1 stopp. Við ákváðum að kaupa okkur ekki mið því þetta er svo stutt. 

Svo þegar við komum í lestina og allt í lagi með það þá sjáum við lestarkallinn við bara geggjað og færum okkur á stað. ( vorum 2 hærði í lestinni )
Förum í annað hólf og þá sjáum við að það eru 2 verðir að koma við bara shit byrjum að hlaupa eins og hálfvitar í annað hólf og í næsta hólf og verðirnir alltaf á eftir okkur! Og lestin ekkert að fara að stoppa, við vorum orðnar rosalega stressaðar því oft séð marga tekna úr lestinni sem hafa ekki borgað miða og fengið sekt! Svo vorum við búnar að hlaupa út í endanum á lestina og svo allt í einu kemur miðakall til okkar og biður um miðann! Við eins og hálfvitar lítum á hvor aðra og katrín fer eitthvað að gramsa í töskunni sinni, svo koma 3 kallar í viðbót ég var orðin rosalega stressuð og farin að titra rosalega í löppunum, ég þykist líka að vera að leita af miða og var náttúrulega ekki með neitt. Katrín lét kallinn fá gamla miðann sinn, miðakallinn sagði við hana, heldur þú að þú getur notað þennan? Katrín byrjaði að reyna að redda sér út úr þessu svo byrja þeir að tala við mig og ég bara ehhh sko ég er með sama miða og hún, svo byrjaði ég að tala við Katríni á íslensku þannig að þeir föttuðu að við værum ekki Portúgalar.  


Lestin stoppaði svo loksins og ég labba bara út og hélt að Katrín væri á eftir mér en nei, hún var en þá inni að biðjast afsökunar og labbar svo út með öllum vörðunum. Þeir hlógu að okkur og sögðu okkur að kaupa miða næst!
 Þetta var ótrúlega fyndið sko sjaldan hlegið jafn mikið eftir þetta, þetta hefði kannski ekki verið svona rosalega fyndið ef við hefðum verið teknar og ef þeir hefðu látið okkur borga einhverja sekt.  Á markaðinum var bara ógeðslegt fólk.Allir að selja hluti sem voru ónýtir eða stolnir. Allir ógeðslegur kallarnir héngu yfir okkur og sögðust elska í okkur augun og spurja hvort við værum systir, við gáfumst fljótt upp á að vera þarna seldum lítið sem ekkert en ég var svo ótrúlega góð að gefa kellingunni sem sat hliðin á mér einhverjar forljótar peysur sem Carla gaf mér og einar buxur. Fólkinu fannst það sko ótrúlega skrítið að ég væri að gefa þetta! Allir starandi á mig eins og ég hefði verið að gefa frá mér gull. En vikan er bara sú sama og vanalega, nema maður var eitthvað svo þreyttur þannig að maður var ekki í stuði til að mæta í alla tímana þessa vikuna þannig að ég gaf sjálfum mér pínu frí. Fór í ensku í morgun og ég og Bruno héldum fyrirlestur sem var ótrúlega skemmtilegur fyrirlestur reyndar var umræðuefnið ekkert svo skemmtilegt en við náðum einhvern veginn að gera hann það, Bruno var reyndar ekki svo velundirbúinn en þetta bjargaðist, fékk líka út úr enskuprófi og fékk bara mjög fína einkunn þar. 

Ég fékk leiðinlegar fréttir í gær.
Carla og António sögðu við mig í gær að Grýla og leppalúði gætu ekki komið og eytt seinustu helginni í íbúðinni. Þau sögðu að þau þyrftu að vera heima því að Grýla er að fara í aðgerð á löppinni og þarf að liggja upp í rúmi í 1 viku eftir hana.Þau sögðu mér að Baltazar fer heim til þeirra og ég þyrfti að fara líka þangað.Þau búa í pínu frá lisboa ekki rosa langt en það eru engir strætó ferðir í lisbo, lestakerfi né subway, þannig að það væri enginn möguleiki fyrir mig að fara að gera eitthvað þau eru ekki einu sinni með bíl!
Ég var rosalega fúl og ég sagðist ekki vilja eyða seinustu helginni minni horfandi á sjónvarpið. En ég fékk þessa glæsilegu hugmynd að fá að eyða seinustu vikunni minni hjá Katrín. Þannig að ég talaði við fjölskylduna Carla var fyrst ekkert sátt með það en ég sagði henni bara að þetta væri mín ferð og ég ætla mér að njóta seinasta mánuðinn til botns svo að ! þannig að Carla hringdi í host mömmu Katrínar og ég fæ að vera hjá þeim, ekkert smá sátt með það, núna er bara spurning hvort að AFS leyfir mér það.
Getur samt ekki annað verið.
  

Bon Jovi er á morgun og ég get ekki beðið eftir að fara á hann. Þökk sé æðislegri frænku minni Sigurlínu :*  Takk æðislega aftur!
 


Benedikt sæti litli frændi minn var líka 11 mánaða í gær 29! Ekkert smá hvað hann er að verða stór, hlakka svo til að koma heim og knúsa hann og kyssa
J


6.Dagar




ákvað að setja þess mynd inn ég og Bon Jovi :)


cala-te

27. maí 2008 klukkan 14:16


I won't suffer, be broken, get tired, or wasted Surrender to nothing, I'll give up what I Started and stop this, from end to beginning A new day is coming, and I am finally free!

na na na...
gott lag maður.








1. Mánuður.

8. Dagar.

Helgin mín

19. maí 2008 klukkan 12:02
Helgin mín var ekkert smá frábær í alla staði.  Fyrir nokkrum helgum var búið að plana að ég myndi eyða einni helgi í Cascais sem er mjög fallegur staður hérna í Lisoba, einmitt hinum meginn í lisboa þar sem ég bý.Hjá vinafólki Antónios og Corlu. Þau eiga bar og ég var alveg til í að hjálpa þeim eina helgi með hann. Gott að fá smá tilbreytingu.

En já allavega þá fór ég á föstudeginum til Telmu og Pedru, byrjaði á því að taka lest þangað og tók það alveg klukkutíma ótrúlega leiðinlegt að ferðast einn með lest það er svo niðurdrepandi. En já þá kom Telma og náði í mig á lestarstöðinni og byrjaði strax á því að sýna mér hitt og þetta.
Fórum svo að versla í matinn og fórum svo á barin, svo náði ég að plata Kátu (katrín) að koma til mín og hanga með mér þarna því að þau voru með stórt matarboð og þurftu að vinna mikið, þannig að þau gátu ekki verið svo mikið með mér.En já káta kom og við vorum á barnum að drekka kokteila um kvöldið og spjalla saman um hitt og þetta. Tók svo taxa heim um nóttina. Laugardagurinn: Vaknaði maður um 1 og vorum farin út um 3 til að skoða Sintra,  á leiðinni þá sáum við fullt af gömlum bílum og stoppuðum og fórum að skoða. Bílinn minn var þarna einmitt í láni porschinn minn.Svo fórum við að skoða kastalann í Sintra sem er ekkert smá fallegur, sagan segir að þau þurftu að flýja til spánar útaf einhverju og þannig að þau skildu allt eftir, þannig að þegar ég var að skoða þá sá maður brauðbita sem var búið að bíta en var svo skilið eftir á borðinu, eins og einhver hafi verið að borða brauð og þurft svo hlaupa út og skilja það eftir frekar fyndið.Eftir að við skoðuðum kastalann þá brunuðum við á barinn og ég fékk svuntu og var að hjálpa til, það var matarboð fyrir 25 mans. Þannig að það var nóg að gera, ég tók það að mér að skamma mat á diskana, og svo færði ég fólkinu þá. Þau voru ekkert smá ánægð að ég var að hjálpa til sögðu að ég gerði mikið gagn. Sem var vonandi satt hehe. Svo um kvöldið var ég bara fyrir aftan barin að aðstoða við þar. Ótrúlega gaman að gera eitthvað svona nýtt, svo var kennt mér að gera kokteila. Pedru er nefnilega snillingur að gera kokteila.  En svo vorum við bara eitthvað að dundast á barnum til 5 um morguninn fórum heim og að sofa. Sunnudagurinn:Var þannig að við fórum út að borða morgunmat kl 3! Aha sýndu mér svo skjalbökur sem voru í tjörn þarna hjá staðnum sem við vorum að borða á.

Fórum svo á barin að horfa á útslitaleikinn í fótboltanum, Porto – Sporting.
Þetta var hrikalega langur og leiðinlegur leikur á 90 mín gerðist ekkert, ekkert mark reyndar fullt af aukaspyrnum og leikaraskap. Svo var leikurinn framlengdur í 20 mín og þá kom fyrsta markið eftir 15 mín sem Sporting skoraði og svo skoruðu þeir aftur.Þannig að staðan varð 2-0 fyrir Sporting.Hélt að Porto myndi vinna þetta því að þeir eru miklu betri en voru glataðir í þessum leik.En já ætla ekki að tala meira um fótbolta.Fórum svo út að borða með 2 örðum stelpum sem voru búnar að búa í London í 8 mánuði og kunnu samt ekki svo mikið í ensku fannst það skrítið því að ég held að það sé auðveldasta tungumálið til þess að tala það ? En já skiptir ekki. Við borðuðum á rosa fínum veitingastað og í eftirrétt fengum við okkur súkkulaði Pizzu eheh ógeðslega ógirnilegt en rosa gott:P Svo skutlaði Pedru mér heim um 12 leitið. Það voru allir sofandi þegar ég kom heim nema António beið eftir mér og ótrúlega skrítið að sjá hann, hann var með svo mikið skegg að hann leit út fyrir að vera helmingi eldri. En já þetta er orðið gott, er farin bara að bulla JÆtla að segja bara að þetta var ein af þeim bestu helgum hérna í Portúgal, örugglega bara útaf því hversu æðisleg Telma og Pedru voru við mig, þau eru alltaf brosandi og ánægð.Gerðu allt fyrir mig þessa helgi svo að hún yrði skemmtileg og að ég myndi njóta mín hjá þeim.
 
Þau buðu mér vinnu hjá sér og sögðu að ég ætti bara að vera hjá þeim í staðinn fyrir að fara heim til Íslands.Hvað finnst ykkur um að ég verði bara þarna að vinna fram að jólum ?

Bára litla var rćnd :(

11. maí 2008 klukkan 20:07
Halló fólk.Ég er ekki í stuði til að blogga þannig að ég ætla bara að hafa þetta stutt..Ég fór út á föstudaginn og var rænd. Jébb það hlaut að koma að því að það myndi eitthvað gerast fyrir mig.En þá vorum við að koma út af diskói og stóðum aðeins frá því og katrín var nýbúin að vera að gramsa í töskunni minni taka sitt dót úr henni og þegar hún var búin kemur svertingi hleypur að okkur og rífur af mér töskuna, ég stóð þarna og vissi ekkert hvað ég átti að gera og þá hleypur hann milli húsa sund og inn í bíl.. Ég gat ekkert gert það var enginn þarna til að stöðva hann.Þannig að ég missti allt mitt merkilega dót. Visa kortið mitt, myndavélina mína, skólakortið mitt, pening og svo ilmvatnið mitt.
Vorum þó heppin að hann hafi ekki ráðist á okkur, ég er samt ógeðslega fúl út í að hafa misst myndavélina mína því hún er ný.
 
Þannig að ef einhver vill gefa mér nýja myndavél þá má hann það.En ég ætla bara að hætta að hugsa um þetta, ég er búin að vera frekar leið útaf þessu og mig langar bara að gleyma þessu.


 
En í gær fórum við að skoða kastala. Á leiðinni í kastalann þá leið mér eitthvað svo skringilega. Svo þegar við vorum komin og að labba upp í kastalann þá varð mér ótrúlega óglatt og svo bara ældi ég á götuna og var næstum því liggjandi á götunni, alveg eins og hálfviti og það voru sko ógeðslega mikið af fólki þarna! Svo þegar ég stóð upp var ég eins og hálfviti allir starandi á mig en ég stóð bara upp og labbaði í burtu eins og ekkert hefði gerst ahah
.
En svo fórum við í kastalann og þá var fullt af tjöldum þarna með að selja fallega hluti, föt, skartgripi og allt hannað í höndunum. Það var líka mikið af tónlistarmönnum að spila skrítna tónlist. 


En í dag fór ég að skoða eitthvað listarsafn sjaldan sé jafn ljót listaverk, allan tíman var ég að hugsa hvort að þetta fólk væri útúr dópað þegar þau voru að teikna þetta eða bara stórfurðuleg hehe, sá samt eitt listaverk eftir hinn eina sanna Picasso.
En núna er ég bara eins og klessa í lazy boyinum mínum að horfa á tv. Er eitthvað svo slöpp núna. Þannig að ég ætla að fara að koma mér betur fyrir í sófanum og reyna að sofna aðeins.



Nýjar myndir, NÝJAR myndir, nýjar MYNDIR; wúhú


sjáumst fljótlega 

B.ára Á.lfhildur S.teffý B.Á.S !

06. maí 2008 klukkan 21:31
ahha var að skoða myndirnar mínar og finnst rosa gaman að sjá hvað við höfum breyst í gegnum tíðina.


9.Ára gjéllur !


14. ára í manchester !

15.ára

15. ára líka

16. Ára

Framhaldskólinn
Þessi líka

fallega gula hárið




2008


2008

2008.


Eftir að ég fór út sem skiptinemi þá hef ég sko tekið eftir því hverjir eru vinir mínir og hverjir eru það ekki og þið eruð sko mínar bestu vinkonur, sakna ykkar rosalega mikið og get ekki beðið eftir að fá ykkur til Portúgals. Elska ykkur :* :)

Auglýsing

Ísland !

Prófíll

  • Nafn: Bára Dögg Ţórisdóttir
  • Kennitala: 2111903459
  • Netfang: baradogg@gmail.com
  • Stađur: Siglufjörđur/lissabon
  • Heimilisfang: Rua de Moscavide 4.53.01 - 1 A Parque Das Nacoes Lisboa, lisbo 1900-084 Portugal
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Enginn
  • Um mig: Skiptinemi í Portúgal!
  • Annađ: Hress og kát stúlka ;)